Fiskbúð Reykjaness

Fiskbúð Reykjaness var stofnuð af Sigurði Magnússyni. Hann var búinn að vera með hugmyndina í langan tíma og ákvað í júni 2020 að slá til og opna fiskbúð við Brekkustíg 40 í Njarðvík.

Sigurði hafði lengi dreymt um að stofna sína eigin fiskbúð eftir að foreldrar hans hættu starfssemi, þau voru með fiskbúð á Hringbrautinni í Keflavík. Gaman er að segja frá því að sami gamli Plokkfiskurinn að hætti móðir hans er enn í gangi hjá Fiskbúð Reykjaness og nýtur verðskuldaðra vinsælda.